Saturday, 27 January 2007

bílarnir segja brumm brumm brumm....


já það hefur margt gerst seinustu tvo daga... til að byrja einhverstaðar þá fór ég hérna í enn einn bæinn og komst í búðir og keypti mér eina peysu og einn bol í Warehouse ;S kostaði 55 pund... en svona er maður ruglaður... allavega svo keyrði ég heim... já þú last rétt ég keyrði á Englandi, vinstramegin á götunni, með stírið hægra meginn og stefnuljósið og rúðuþurkurnar vitlausu megin líka en það góða er að ég var a sjálfskiptum bíl, ég hefði ekki meikað gírstöng í þokkabót :S en það gekk bara svona þokkalega... komst allavega heim í hús án þess að lenda í árekstri... :D :D Svo í dag var svo farið í miðbæ Lúndunuarborgar, (bara ég og Gugga) við byrjuðum á nokkrum útimörkuðum, keyptum skerm á ljósið í loftinu hjá mér, ég fékk mér belti og Gugga pungtösku, geggjað margt sniðugt, geggjaðir skartgripir og hlutir,allavega...svo fórum við á myndlistasafn með helling af frægum köllum geggjað flott og svo á annað ljósmyndasafn og svo var ekki hægt að sleppa því að fara í nokkrar búðir... ég keypti mér tösku og tvenna boli í Esprit .. svo var bara tekin lestin heim og eins og vanalega þá var ég komin með þennan líka rosalega hausverk og þurfti að taka verkjatöflur.. ekki sniðugt :((

Já og svo sótti ég auðvitað um námskeið og ég fékk markaðsfræðina og pottery en það var fullt í skartgripagerðina, svo á ég eftir að sækja um gardínunámskeiðið en svo er vesenið að ballon námskeiðið lendir á sama tíma og pottery tíminn.... sé til hvað ég geri í því... :) allavega er ég að fara í skóla... svo er ég að farað byrja í ræktinni, hún er bara hinumegin við götuna, þar getur maður bæði farið í tíma og svo fengið einkaþjálfara ekkert rosalega dýrt, veit ekki hvernig það fer, ég og Stebbi ætlum kannski á morgun :S

Allavega vildi bara láta vita af mér.... Björg

3 comments:

Anonymous said...

Halló skotta mín!Þú ert bara snillingur á bíl.Espirit...vel valið!Nú er bara að taka á í ræktinni!!!!!!!!!!!!!ekki svo langt að fara.Kleópatra og Jónas biðja að heilsa. Þín mamma.

Anonymous said...

Abbababbbbb þú mátt nú ekki klikka á blöðrunámskeiðinu. Við treystum á að þú getir gert hunda, blóm, sverð ofl ofl fyrir útskriftina þína og afmælið mitt... stór afmælið sko tvítug *ræsk*
Ég tek undir með mömmu þinni, þú ert snillingur á bíl, úff allt vitlausu megin....
kv. SDV

Anonymous said...

Rosalega er gott að þú sért sona dugleg að blogga, vildi aðég væri sona dugleg, en ég er að fara að taka mig á í essu;) En þú mátt nú alveg fara að taka myndir á nýju myndavélina þína og setja hérna inn á bloggið og sýna okkur sem á búum hérna á klakanum hvað það er ógó flott hjá þér þarna í London;)
Kv. Elma