
Á fimmtudeginum fórum við í bæinn... fórum á Dalí safnið og röltum svo bara í einhverja hringi .. og enduðum í kínahverfinu sem var mjög gaman. Svo audda verða að prófa eitthvað af þessum kaffihúsum en leið og við settumst niður byrjaði Lay Low í útvarpinu en það var ekki allt, eftir að hafa rölt um kínahverfið í smá tíma röltum við upp á Oxford og þar gengum við fram á stóra auglýsingu af Garðari Cortes .. mjög íslenskur dagur svo enduðum við hjá Liesester Square og fengum okkur ís. Svo skelltum við okkur bara heim og fengum okkur góðan kjúkling í kvöldmatinn og svo var bara slappað af :)

Á laugardaginn fórum við á hefðarsetur þar sem við sáum víkinga, gríska hermenn, riddara og breska riddara og auðvitað kom drekinn en riddarinn náði að bjarga málunum... nokkuð skondið :D híhí... eftir að hafa farið og skoðað setrið sjálft, og það sem hver hópur var með uppá að bjóða og lamið drekann aðeins, fórum við heim og slöppuðum af .. eða eins mikið og hægt er þegar mamma fer í ham :D heehhehe.....
á sunnudeginum keyrði ég svo mömmu á völlinn eftir að hafa hjálpað henni að troða ofan í tösku... sem var nú ekkert smá púsluspil :) hehe.. og þá var það bless.. það var erfitt, en þar sem það eru ekki nema 28 dagar í dag þangað til ég kem heim þá var þetta auðveldara... Váa.. time flies when you are having fun:D
Áður en mamma kom fórum við í dýragarðinn hérna rétt hjá en síðan hún fór (sem eru ekki nema 3 dagar) höfum við gert voða lítið annað en að slappa af :) en svo er planið að fara í dýragaðinn aftur á föstudaginn rosa stuð ;) en já ...svo að því sem er í gangi heima... það er allt í háa loftum heima í Birkihlíðinni, það er verið að byggja einhvern rosa pall fyrir aftan hús og það er búið að leggja inn pöntun fyrir trampólíni en það er nú ekki minna að gerast inni, hún elsku mamma er að mála stofuna hvíta akkurat núna.. krafta fólk. Svo er reyndar allt á fullu fyrir austan hjá honum Valla mínum og Óla Bjarna líka. Þeir eru að reyna að klára bí

2 comments:
Bara 28 dagar... Vááá hvað tíminn er fljótur að líða mér finnst eins og það hafi verið í gær sem að þú komst og kvaddir mig á Ólafshúsi "snökt".... hehe en ég hlakka allavega til að fá þig til landsins það verður djammað feitt þegar þú kemur ;) er haggi...?
Verðum í blandi sæta mín:)
Kv. Elma
Hæ sæta...
Vá bra 28 dagar!!!
Shitt það er ekkert grín að tíminn flýgur þegar þú ert að skemmta þér. Þo svo að ég sé ekkert búin að vera að skemmta mér (A) hehe..En þú verður að vera í bandi þegar þú kemur á klakann... ég verð að fá að hitta uppáhalds Álfinn minn!!!
Saknjú!!
Kv. Bogga :D
Post a Comment